Opnir tímar í íþróttamannvirkjum Suðurnesjabæjar
Núna geta börn og unglingar í Suðurnesjabæ komið í íþróttasalina utan æfingatíma og leikið sér, æft sig og haft gaman með vinum sínum.
Hverjir mega koma?
Börn sem verða 10 ára á árinu eða eldri 1.júní
Yngri börn mega koma með einstaklingi sem er 15 ára eða eldri
Foreldrar þurfa að skrá þátttöku í Abler- börn eru á ábyrgð foreldra í salnum!
Mikilvægar reglur
Sýnum virðingu og verum góð hvert við annað
Göngum vel um salinn og búnaðinn
Íþróttafatnaður er skilyrði
Aðeins innanhússkór, gripsokkar eða tásur
Skráum okkur í afgreiðslu áður en við förum inn í sal
Mundu
Enginn matur eða tyggjó í salnum
Láttu starfsfólk vita ef eitthvað skemmist eða einhver meiðist
Ef reglur eru ekki virtar getur verið lokað á aðgang tímabundið
Við hlökkum til að sjá ykkur í salnum! 💙
https://www.abler.io/shop/sudurnesjabaer

