Sundlaugar opna 10.des

9. desember - 2020
Sundlaugin opnar á morgun samkvæmt opnunartíma, Ljósabekkir opna einnig, Öll útleiga á íþróttasal ekki leyfð og líkamsræktarsalir lokaðir.
Aðgangur frá og með 10.des
Sundlaug; 28.manns hámark einstaklingar eldri en 2005 taldir með.
Íþróttasalur; lokaður fyrir útleigu
Lyftingasalur; lokaður.
Ljósabekkir; opnir.
Viðskiptavinir verða að passa uppá nálægðartakmörk á öllum svæðum, 2 metra reglan.
 
Hökkum til að sjá ykkur.
 
Hér er fundargerð aðgerðarstjórnar frá því í morgun.
 
Frá og með 10. desember taka gildi breytingar á reglugerð um sóttvarnir og samkomutakmarkanir.
 
Helstu áhrif á starfsemi Suðurnesjabæjar eru að sundlaugar opna á ný, um starfsemi sundstaða gilda
reglur er varða hámarks gestafjölda hverju sinni. Þá falla niður ákvæði um fjöldatakmörkun,
nálægðartakmörkun og grímuskyldu barna sem fædd eru 2005 og síðar.
 
Ákvæði um blöndun og hámarksfjölda leikskólabarna fellur brott, þannig að leikskólar geta aðlagað
starfsemi betur yfir hátíðarnar. 2 metra regla og grímuskylda fellur niður hjá nemendum í 8. – 10. bekk í
samræmi við reglugerð um takmarkanir á samkomum. Reglur sem gilda munu um skólastarf frá 1.
Janúar 2021 verða kynntar fljótlega.
 
Að öðru leyti hafa breytingar á reglugerðnni nú ekki í för með sér breytingar á þeim ráðstöfunum sem
hafa verið í gildi varðandi starfsemi og þjónustu Suðurnesjabæjar. Áfram gildir hámarksfjöldi 10 manns í
sama rými og 2 metra reglan, ásamt öðrum einstaklingsbundnum sóttvörnum. Áfram verða ráðhús
sveitarfélagsins lokuð og starfsfólki verður áfram skipt upp þannig að hluti þeirra starfar á sínum
starfsstöðvum í ráðhúsum og hluti sinnir störfum að heiman.
 
Í samræmi við ákvæði reglugerðar sem er í gildi og fyrri ákvarðanir aðgerðastjórnar, þá eru
samkomusalir og íþróttasalir ekki til útleigu. Varðandi íþróttaæfingar er vísað í ákvæði fyrri reglugerðar
sem er í gildi og þær breytingar á reglugerð sem gildir frá og með 10. desember 2020.
Líkamsræktarstöðvar eru áfram lokaðar.
 
Aðgerðastjórn hvetur alla til þess að fylgja þeim leiðbeiningum og reglum sem eru í gildi um smitvarnir
og samkomutakmarkanir. Einnig hvetur aðgerðastjórn til útivistar og líkamsæfinga utandyra.